Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
„Sú vinna verður unnin í nánu samtali við greinina,“ sagði Hanna Katrín Friðriksson um endurskoðun á stuðningskerfi landbúnaðarins.
„Sú vinna verður unnin í nánu samtali við greinina,“ sagði Hanna Katrín Friðriksson um endurskoðun á stuðningskerfi landbúnaðarins.
Mynd / Ástvaldur Lárusson
Fréttir 9. apríl 2026

Endurskoðun á stuðningskerfi landbúnaðarins fram undan

Höfundur: Þröstur Helgason

Með framlengingu gildandi búvörusamninga til loka árs 2027 er lagður grunnur að stöðugleika en jafnframt er fram undan umfangsmikil endurskoðun á stuðningskerfi landbúnaðarins, sagði atvinnuvegaráðherra við setningu Búnaðarþings. Hann nefndi jafnframt ýmis brýn verkefni sem liggja fyrir á næstu mánuðum og misserum svo sem endurskoðun á lögum um velferð dýra og á jarðalögum.

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra sagði í ávarpi sínu við setningu Búnaðarþings að með því að klára formlega framlengingu gildandi búvörusamninga til loka árs 2027 væri lagður grunnur að stöðugleika á sama tíma og ljóst væri að fram undan sé umfangsmikil vinna við endurskoðun á stuðningskerfi landbúnaðarins.

„Sú vinna verður unnin í nánu samtali við greinina. Markmiðið er að tryggja að stuðningurinn endurspegli breyttar aðstæður, auki sveigjanleika, styðji við nýsköpun og framleiðni og taki mið af auknum kröfum samfélagsins um sjálfbærni, gagnsæi og ábyrgð.“

Kynslóðaskipti

Ráðherra sagði að fram undan væri því mikilvægt samtal um framtíð íslensks landbúnaðar. „Þar þurfum við að horfa til þess hvernig við tryggjum að greinin sé bæði samkeppnishæf og aðlaðandi fyrir komandi kynslóðir.“

Kynslóðaskipti væru ein stærsta áskorun landbúnaðarins í dag. „Við sjáum að meðalaldur bænda er hár og að nýliðun þarf að aukast. Þetta snýst ekki aðeins um að taka við búum, heldur um að skapa aðstæður þar sem ungt fólk sér tækifæri til að byggja upp lífsviðurværi sitt í landbúnaði. Þar skipta aðgengi að fjármagni, stuðningskerfi sem hvetja til nýliðunar og skýr framtíðarsýn sköpum.“

Fjárfestingarþörf

Ráðherra sagði þennan vanda einnig tengjast fjárfestingaþörf landbúnaðarins. „Til að mæta kröfum um aukna framleiðni, bæta nýtingu auðlinda, draga úr losun kolefnis og auka velferð dýra þarf verulegar fjárfestingar. Við þurfum að tryggja að rekstrarumhverfið styðji slíkar fjárfestingar og að hvatar séu til staðar fyrir bændur til að þróa starfsemi sína áfram.“

Velferð dýra

Ráðherra sagði að velferð dýra væri málefni sem njóti sífellt meiri athygli í samfélaginu. „Það er eðlilegt og mikilvægt. Íslenskur landbúnaður hefur á margan hátt staðið framarlega á því sviði, en við megum aldrei slaka á kröfum. Traust almennings byggir á því að við sýnum í verki að velferð dýra sé í forgangi og að við séum reiðubúin að þróa reglur og starfshætti í takt við aukna þekkingu og breytt viðhorf.“

Sagðist ráðherra hafa áform um að taka til endurskoðunar á næsta þingvetri lög um velferð dýra sem voru sett 2013 „og um það verður að sjálfsögðu haft samráð við bændur eins og aðra hagaðila“, sagði ráðherra.

Tryggja þarf stöðu kvenna

Ráðherra sagði mikilvægt að tryggja stöðu kvenna í landbúnaði og að tækifæri þeirra séu jöfn, „að aðgengi að stuðningi og fjármagni sé raunverulega opið öllum og að raddir kvenna fái aukið vægi í stefnumótun og ákvörðunum“.

Endurskoðun á jarðalögum

Í máli ráðherra kom fram að til stendur að skoða hvernig tryggt sé að land nýtist til framleiðslu matvæla, að aðgengi að landi sé raunhæft fyrir þá sem vilja hefja búskap og að langtímahagsmunir samfélagsins, þar á meðal fæðuöryggi, séu hafðir að leiðarljósi. „Það hyggjumst við meðal annars gera með því að taka gildandi jarðalög til skoðunar í því ljósi,“ sagði ráðherra.

Efla innlenda framleiðslu

Ráðherra sagði að atburðir í alþjóðasamfélaginu hafi sýnt að traustar innlendar framleiðslukeðjur skipti sköpum. „Íslenskur landbúnaður og önnur matvælaframleiðsla er þar lykilþáttur. Það er sameiginlegt verkefni okkar að styrkja þann grunn enn frekar, með því að efla innlenda framleiðslu, tryggja aðföng og byggja upp þekkingu og nýsköpun.“

Alþjóðlegar áskoranir

Ráðherra lagði áherslu á að áskoranir íslensks landbúnaðar væru á margan hátt hluti af stærra alþjóðlegu samhengi og sannarlega ekki séríslenskar. „Víða um heim glímir greinin við hækkandi meðalaldur bænda og erfið kynslóðaskipti, auk þess sem óstöðugar aðfangakeðjur og hækkandi verð á aðföngum hafa haft veruleg áhrif á rekstrarskilyrði. Það er ekki bara hér sem landbúnaður er háður innfluttu jarðefnaeldsneyti, lyfjum, tækjabúnaði og mörgu öðru. Það er mikilvægt að efla sjálfbærni og auka viðnámsþrótt bæði landbúnaðarins og samfélagsins í heild, svo við fáum betur staðist áföll í ótryggum heimi. Atburðir undanfarinna missera hafa leitt það skýrt í ljós.“

Íslenskt handverk í hávegum
Fréttir 22. ágúst 2026

Íslenskt handverk í hávegum

Safnasafnið, ein af perlum Eyjafjarðar, var stofnað þann 17. febrúar 1995 af hjó...

Svigrúm til breytinga á stuðningskerfi landbúnaðar
Fréttir 21. ágúst 2026

Svigrúm til breytinga á stuðningskerfi landbúnaðar

Atvinnuvegaráðuneytið hefur birt áfangaskýrsluna Greining vegna endurskoðunar st...

Beint frá býli dagurinn um helgina
Fréttir 20. ágúst 2026

Beint frá býli dagurinn um helgina

Beint frá býli dagurinn verður haldinn sunnudaginn 23. ágúst. Þetta er fjórða ár...

Halla Sif ein af 100 kvenhetjum FAO
Fréttir 20. ágúst 2026

Halla Sif ein af 100 kvenhetjum FAO

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis h...

Ný útgáfa af Brennu-Njálssögu væntanleg
Fréttir 20. ágúst 2026

Ný útgáfa af Brennu-Njálssögu væntanleg

Njálufélagið undirbýr nýja og glæsilega útgáfu Njálu með haustinu en fyrirhugaðu...

Dagskrá Ullarvikunnar gleður
Fréttir 18. ágúst 2026

Dagskrá Ullarvikunnar gleður

Ullarvika verður haldin á Suðurlandi dagana 27. september til 3. október í haust...

Rannsókn á jarðhitakerfi Fáskrúðsfjarðar
Fréttir 17. ágúst 2026

Rannsókn á jarðhitakerfi Fáskrúðsfjarðar

Fjarðabyggð undirbýr nú næsta áfanga jarðhita- leitar á Fáskrúðsfirði, en áforma...

Rannsóknasetur íslenska hestsins
Fréttir 17. ágúst 2026

Rannsóknasetur íslenska hestsins

Nú er unnið að því að koma upp rannsóknasetri íslenska hestsins á Hólum í Hjalta...